Færslur: 2005 Nóvember

24.11.2005 15:56

Minnkandi tungl

Minnkandi tungl

Þann 16. nóvember síðastliðinn var fullt tungl. Við erum því á minnkandi tungli um þessar mundir og verðum fram til 1. desember. Þegar þessi grein er skrifuð, 21. nóvember 2005, er þriðji fasinn rúmlega hálfnaður. Myndin sem fylgir greininni er frá NASA og sýnir minnkandi tungl. Til er ágæt regla sem hjálpar okkar að þekkja tunglið, þ.e.a.s. vita hvenær það er vaxandi eða minnkandi, þegar við horfum á það á himni.


Ef þú horfir á tunglið og réttir upp hægri hendina og býrð til smá boga á lófann, þá á ljósa hliðin á tunglinu að falla í lófann þegar tunglið er vaxandi. Ef þú réttir upp vinstri höndina og ljósa hlið tunglsins fellur inní vinstri lófann þá er tunglið minnkandi.

Með öðrum orðum, þegar ljósið er hægra megin og myrkrið vinstra megin, þá er tunglið vaxandi. Þegar ljósið er vinstra megin og myrkrið hægra megin þá er það minnkandi, sbr. á myndinni hér til hliðar sem sýnir minnkandi tungl.

Samkvæmt stjörnuspeki er talið að meiri vaxtarkraftur sé í náttúrunni á vaxandi tungli. Tímabil minnkandi tungls er talið innhverfara og betur fallið til ýmis konar hugleiðinga og vangaveltna. Við erum sem sagt á slíku tímabili þegar þessi orð eru rituð. Eftir 1. desember, en þá er aftur nýtt tungl, má búast við að meiri kraftur og "útsókn" færist yfir náttúru og mannlíf.

Heimild: MBL.

18.11.2005 16:19

Kalli í Holti sigraði með sænskum slagara og Jóhannes í Bónus annar

18. Nóvember 2005
Kalli í Holti sigraði með sænskum slagara og Jóhannes í Bónus annar Karl Magnús Bjarnarson 18 ára nemi frá Holti í Stokkseyrarhreppi hinum forna sigraði með sænskum slagara í söngkeppni Nemendafélags Fjölbtrautaskóla Suðurlands síðastliðinn fimmtudag 10. nóvember og haldin var í Iðu að viðstöddum rúmlega 600 manns.

Lagið var ?En midsommarsnatt dröm? sem upprunalega var flutt af Hakan Hellström.

Í öðru sæti var Jóhannes Erlingsson á Eyrarbakka sem oftast er kallaður af vinum og vandamönnum ?Jóhannes í Bónus? þar sem hann vinnur með skólagöngu.

Fjóla Dögg Sigurðardóttir var í þriðja sæti.

Karl verður því sendur fyrir hönd Fjölbrautaskólan Suðurlands á úrslitakeppni framhaldsskólanna.


Heimild: Sunnlenska fréttablaðið og Glugginn.

16.11.2005 21:21

Ágóði rokktónleika rennur til UNICEF

Ágóði rokktónleika rennur til UNICEF Alls söfnuðust hundrað þúsund krónur til styrktar Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna á Rokkveislu sem nemendafélag Framhaldsskólans í Austur-Skaftafellssýslu stóð fyrir um helgina. Nemendur vonast til þess að söfnunarféð nýtist börnum í neyð víða um heim. Birgir Fannar Reynisson, formaður nemendafélagsins, segir að skemmtunin hafi heppnast vel en alls voru 13 hljómsveitir sem spiluðu á Rokkveislunni fyrir um 200 gesti. Hann segir skemmtunina hafa farið vel fram hann hefði þó viljað sjá fleiri gesti. Nemendafélagið ákvað fyrr í haust að halda tónleika til styrktar UNICEF og gefa 40% ágóðans til samtakanna. 60% ágóðans rennur til nemendafélagsins.

06.11.2005 10:42

Vetur

mbf-vetur.jpg
  • 1
Flettingar í dag: 62
Gestir í dag: 42
Flettingar í gær: 55
Gestir í gær: 20
Samtals flettingar: 77238
Samtals gestir: 16094
Tölur uppfærðar: 5.5.2024 12:01:25
Site Meter