24.11.2005 15:56

Minnkandi tungl

Minnkandi tungl

Þann 16. nóvember síðastliðinn var fullt tungl. Við erum því á minnkandi tungli um þessar mundir og verðum fram til 1. desember. Þegar þessi grein er skrifuð, 21. nóvember 2005, er þriðji fasinn rúmlega hálfnaður. Myndin sem fylgir greininni er frá NASA og sýnir minnkandi tungl. Til er ágæt regla sem hjálpar okkar að þekkja tunglið, þ.e.a.s. vita hvenær það er vaxandi eða minnkandi, þegar við horfum á það á himni.


Ef þú horfir á tunglið og réttir upp hægri hendina og býrð til smá boga á lófann, þá á ljósa hliðin á tunglinu að falla í lófann þegar tunglið er vaxandi. Ef þú réttir upp vinstri höndina og ljósa hlið tunglsins fellur inní vinstri lófann þá er tunglið minnkandi.

Með öðrum orðum, þegar ljósið er hægra megin og myrkrið vinstra megin, þá er tunglið vaxandi. Þegar ljósið er vinstra megin og myrkrið hægra megin þá er það minnkandi, sbr. á myndinni hér til hliðar sem sýnir minnkandi tungl.

Samkvæmt stjörnuspeki er talið að meiri vaxtarkraftur sé í náttúrunni á vaxandi tungli. Tímabil minnkandi tungls er talið innhverfara og betur fallið til ýmis konar hugleiðinga og vangaveltna. Við erum sem sagt á slíku tímabili þegar þessi orð eru rituð. Eftir 1. desember, en þá er aftur nýtt tungl, má búast við að meiri kraftur og "útsókn" færist yfir náttúru og mannlíf.

Heimild: MBL.
Flettingar í dag: 82
Gestir í dag: 42
Flettingar í gær: 35
Gestir í gær: 14
Samtals flettingar: 78550
Samtals gestir: 16724
Tölur uppfærðar: 18.5.2024 17:01:31
Site Meter