16.11.2005 21:21

Ágóði rokktónleika rennur til UNICEF

Ágóði rokktónleika rennur til UNICEF Alls söfnuðust hundrað þúsund krónur til styrktar Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna á Rokkveislu sem nemendafélag Framhaldsskólans í Austur-Skaftafellssýslu stóð fyrir um helgina. Nemendur vonast til þess að söfnunarféð nýtist börnum í neyð víða um heim. Birgir Fannar Reynisson, formaður nemendafélagsins, segir að skemmtunin hafi heppnast vel en alls voru 13 hljómsveitir sem spiluðu á Rokkveislunni fyrir um 200 gesti. Hann segir skemmtunina hafa farið vel fram hann hefði þó viljað sjá fleiri gesti. Nemendafélagið ákvað fyrr í haust að halda tónleika til styrktar UNICEF og gefa 40% ágóðans til samtakanna. 60% ágóðans rennur til nemendafélagsins.
Flettingar í dag: 107
Gestir í dag: 43
Flettingar í gær: 35
Gestir í gær: 14
Samtals flettingar: 78575
Samtals gestir: 16725
Tölur uppfærðar: 18.5.2024 18:01:29
Site Meter