01.12.2005 19:17

MEGASUKK og NILFISK með tónleika Það verða nokkrir tónleikar á dagskrá í Reykjavík í kvöld. Þar á meðal mun hljómsveitin Nilfisk halda upp á útgáfu sína á Grand Rokk á meðan Megasukk verða í Stúdentakjallaranum.

Nilfisk varð mjög þekkt hér á landi í kjölfar þess að Foo Fighters, og þá sérstaklega Dave Grohl söngvari og gítarleikari sveitarinnar, fann þá í bílskúr á Stokkseyri. Hann leyfði þeim að hita upp á tónleikum sínum í Laugardalshöll eins og þekkt er orðið og nú eru Nilfisk-menn komnir með plötu. Með þeim í kvöld verða hljómsveitirnar Diagon og Touch.

Megasukk hélt útgáfutónleika sína í gær en í kvöld er ætlunin að troða upp í Stúdentakjallaranum. Þeir verða með nýja plötu sína í farteskinu en hún kom út á dögunum og ber nafnið Hús datt.

Heimild: www.ruv.is
Flettingar í dag: 193
Gestir í dag: 53
Flettingar í gær: 35
Gestir í gær: 14
Samtals flettingar: 78661
Samtals gestir: 16735
Tölur uppfærðar: 18.5.2024 21:31:30
Site Meter